Archive for Pólitík
Rússíbanareið
Nú veit ég ekkert um peninga og hefur bæði þeim og mér þótt best að hafa sem minnst samneyti við hvort annað sem lýsir sér fyrst og fremst í því að ég reyni að losa mig við þá um leið og ég kemst yfir þá. Þetta er aðalástæðan fyrir því að ég er ekki fyrsta bankastýra á Íslandi.
Þess vegna ætti ég að segja sem minnst um ástandið.
En mig langar að stinga að ykkur observation sem er svona mín upplifun af íslenskri hagstjórn. Henni má lýsa með sínusbylgju:

Ég er nefninlega eldri en tvævetur og eftir að ég hef komist á fullorðinsár hef ég tekið þátt í tveimur hæðum (sumir vilja nefna þetta bólur) og einni lægð í efnahagskerfinu. Ég skil svo mikið í fréttunum að vita að núna erum við einhversstaðar nálægt botninum í sínusbylgjunni minni fínu. Og af því að ég hef upplifað það sjálf tvisvar þá veit ég að fljótlega á eftir botninum er náð kemur uppsveiflan. Og þar sem ég veit að ég get ekki nokkurn skapaðan hlut gert í málunum þá bara bíð ég þolinmóð eftir að mér verði kippt upp aftur. Rétt eins og ég vissi þar sem ég sat á toppnum á bylgjunni í risapartýi þar sem Magni og Dilana léku undir dansi fyrir, ó, svo stuttu síðan, að nú væri bara ein leið og hún væri niður á við.
Aðhvarf að miðgildi (regression toward the mean) heitir það.
Þetta er kannski ekki sérstaklega skarpskyggnt mat á ástandinu en þetta er mín hugmynd (mental model) um það hvernig efnahagskerfið virkar. Og ég er bara farþegi í þessum rússíbana.
En það eru fleiri fyrirbæri sem má lýsa á sama hátt. Sveiflukennt skap þess sem þjáist af geðhvarfasýki tekur sínar hæðir og lægðir. Og þó að svartnættið neðst í bylgunni sé yfirþyrmandi þá eru margir þeir sem þjáðst af geðhvarfasýki ekki tilbúnir til að fórna ofsagleðinni á toppnum með því að taka lyf.
Þarna finnst mér við geta fundið aðra samlíkingu við íslenska hagstjórn. Við erum ekki tilbúin til að taka geðstýrandi lyf (þ.e. binda taum okkar við stærri efnahagskerfi eins og Evrópusambandið eða Bandaríkin) því að þá fengjum við ekki að njóta vímunnar í maníunni.
En hvað finnst farþegunum í rússíbananum? Viljum við sigla lygnari sjó eða sækjum við í adrenalínkikkið? Er það ekki það sem við ættum að taka afstöðu til í næstu kosningum?
:)
MD
Enn óákveðin?
Hérna er smá spurningakönnun um skoðanir manns og hvernig þær parast við stefnumál flokkanna. Gæti hjálpað en er náttúrulega enginn sannleikur.
Ég er allavega nokkurnveginn komin á það að kjósa Íslandshreyfinguna, þó það væri ekki nema til að vekja athygli á að þau hafa mikið til síns máls.
:)
MD
Kosningaloforð
Jæja, það er komið að því. Kosningar. Ég hef lofað sjálfri mér að nýta alltaf kosningarétt minn. En ég bara veit ekki hvað ég á að kjósa. Og ég þarf að vera búin að því fyrir miðvikudaginn.
Það er skemmtileg æfing að taka afstöðu prófið, en gefur mjög einfaldaða mynd af stöðunni. Og í mínu tilfelli alls ekki skýra niðurstöðu… Komst bara að einu með því að dunda mér við að svara þeirri könnun: Ef maður velur alltaf innihaldslausasta svarið þá kemur í ljós að þau tilheyra V.
Einhver góð ráð og bendingar? Annars skila ég bara auðu. Eina ferðina enn.
:)
MD
3 fjaðrir verða að heimsfaraldri
Bird flu risk to Britons ‘is minimal’
… Sir David said the experience of the disease in Asian countries suggested that humans were about seven times more likely to win the National Lottery than they were to contract bird flu.In China, where the deadly strain is endemic among birds, just 14 infections and eight deaths have been confirmed by the World Health Organisation in the population of 13 billion people – a rate of one case per 93 million and one death per 163 million.
Sir David King er helsti vísindaráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar.
Það er gott að rödd skynseminnar fær enn að hljóma þrátt fyrir að markvisst sé verið að hræða fólk í fjölmiðlum.
:)
MD
Comments off
Tvær fjaðrir -> Fjórar hænur?
Takk Ingólfur Bjarni! Loksins einhver sem hættir hræðluáróðrinum og tekur kalt mat á þetta fluglaflensufaraldsæði!
:)
MD
Comments off
London
Guardian Unlimited: Newsblog0851: First incident between Moorgate and Liverpool St. An explosion hits the train 100 yards from Liverpool St, in the tunnel. There are seven fatalities.
0856: The second blast happens on a tube train between Kingâs Cross and Russell Square. 21 are confirmed dead.
0917: A third blast, this one at Edgware Road. It was powerful enough to blow a hole into another train, with three trains in all involved. Five dead.
0947: The fourth blast, this time on a bus in Tavistock Place. There are no numbers on fatalities from this attack.
There was no warning, and no claims of responsibility yet.
DAC Brian Paddick: “This was clearly a callous attack on purely innocent members of public clearly designed to kill and injure members of the public.”
Við hljótum öll að vera með hugann í London.
MD
Comments off
Drama
Nokkrar dramadrottningar eyddu gærkvöldinu í að hengja svarta borða á hús við Laugaveginn. Yfirleitt voru þetta hús sem settar hafa verið á þær kvaðir að eigendur megi koma með tillögur að stórkostlegum breytunum á húsum þeirra eða lóðum til samþykktar hjá borgarráði áður en ráðist er í breytingar. Líka voru merkt hús sem hafa verið friðuð en DV ranglega flokkað með hinum. Ég var því sérstaklega glöð að lesa yfirlýsingu Frank Michelsen á mbl í dag og vildi nota tækifærið og þakka kærlega fyrir!
:)
MD
Go Fascism!
Jæja, nú eru Kanar loksins búnir að gefa út tilskipunina. Fína APIS verkefnið mitt endar ekki ofan í skúffu:
Electronic Transmission of Passenger and Crew Manifests for Vessels and Aircraft; Final Rule
Nú er að nýta sér fasismann í bUSh og búa til .
:)
MD
