Archive for Kafli í ævisöguna
Ný klipping – sama dama



Ný hárgreiðslukona – ný klipping.
Ég vil meina að ég sé eins og Irina Spalko en sumir vilja meina að ég sé meira eins og Solla stirða. (Það sést að vísu illa á myndinni en ég er með bleikar strípur.) Nú legg ég þetta í dóm lesenda. Hvað finnst þér? Irina eða Solla?
;)
MD
Vefarar í fremstu röð
Það eru fáir sem njóta þess að vinna með jafn frábæru fólki og ég og á föstudaginn fengum við viðurkenningu að þess að það endurspeglast í því sem við gerum. Þá veittu samtök vefiðnaðarins okkur verðlaun fyrir besta útlit og viðmót vefs 2008 og fyrir besta vefinn 2008.
Ef ég mætti ráða væru líka veitt vefverðlaun fyrir besta vefteymið. Ég veit að við myndum vinna það líka.
Og svo að því sé haldið vandlega til haga þá væri siminn.is ekki verðlaunavefur ef við hefðum ekki vefhönnuð Íslands Arnar Ólafsson og snillingana frá HugAx, Origo og Gagarín til að útfæra hugmyndir okkar.
:)
MD
2008
Mikið var gaman að vera til 2008 :D Við ferðuðumst fullt og lærðum margt, nutum þess að vera til. Meðal ferða voru:
- Górlluferð til Úganda og Rúanda
- Afmælisferð til Kaupmannahafnar
- Stelpuferð til Boston
- Ráðstefna í San Francisco
- Heimsækja Hrönn í New York, NY og fara á tónleika í Atlanta, GA
- Sólarlandaferð til Krítar
- Snæfellsnes og Breiðarfjörður með T&K
- Skíðaferð til Lake Tahoe
Að auki var margt spennandi að gerast í vinnunni. Tvö stór hönnunarverkefni eru komin á skrið hjá mér og vonandi fæ ég að sjá afrakstur þeirra á þessu ári. Ég tók upp nýtt áhugamál, veit ekki hvernig það þróast en það er gaman. Hjalli stofnaði nýtt fyrirtæki og er búinn að vera eins og gutti í dótabúð síðan og svo lukum við loksins við að ganga frá innréttingum fyrir íbúðina. Nú er þá kominn tími til að fara að skoða að endurinnrétta baðið… En það er 2009 stöff.
2008 var sérstaklega gott ár fyrir listann góða. Mörg markmið og óskir voru uppfyllt:
- Fara í skíðaferð til útlanda
- Heimsækja NY, NY
- Læra að kafa (Krít)
- Sjá Tom Waits á tónleikum (þetta eru tónleikarnir sem við vorum á).
- Lesa Alice in Wonderland og Through the Looking Glass í upprunalegri útgáfu (MD)
- Vinna aftur í miðbænum (HG)
Og þá er hafið nýtt ár með nýjum og spennandi ævintýrum.
Hlakka til!
:)
MD
Arctic Girl Geek Dinner
Það hefur verið áberandi fyrir mig og margar vinkonur mínar að það hefur vantað jákvæðan félagsskap kvenna sem hafa verið kallaðar nördar/strákar/proffar og það allt sem hrós. Sem betur fer eru þetta konur sem taka málin í sínar hendur og höfum við nú ákveðið að taka upp breska hugmynd: Girl Geek Dinner.
Girl Geek Dinner er félagsskapur ‘girl geek’ sem hittast reglulega og kynnast, hlusta á tæknilega fyrirlestra, borða góðan mat og lyfta jafnvel glasi. Hér er áherslan á að vera skemmtilegur, læra nýtt, kynnast fólki og vera góðar fyrirmyndir. Ef að strákana langar að vera með, þá mega þeir gjarnan mæta á viðburði, í fylgd með félagskonu.
Eftir að fyrsti klúbburinn var stofnaður fyrir 3 árum hefur orðið borist eins og eldur í sinu um allar jarðir og má finna Girl Geek Dinner klúbba vítt og breitt um heiminn, frá Kanada til Nýja-Sjálands. Og nú er komið að Arctic Girl Geek Dinner.
Eitt af því sem við rákumst á þegar við fórum að skoða þetta var að við vissum ekki hvað við ættum að kalla ‘girl geek’ á íslensku. Svo við fengum til liðs við okkur Baldur Sigurðsson dósent í íslensku sem er einnig faðir úrvals ‘girl geek’ og hann kom upp með orðið ‘tæknitáta’. Um leið og ég heyrði það þá langaði mig að vera tæknitáta.
Svona félagsskapur lifir náttúrulega á því að skemmtilegar kjarnakonur vilji vera memm. Ef þú vilt vera memm ekki vera feimin við að skrá þig í Facebook-grúppuna sem við bjuggum til eða hafa samband.
Stefnan er að hafa fyrsta hittinginn í nóvember – skráið ykkur og verið með!
:)
MD
Górillu-list
Þar sem ég hef ekkert gáfulegt um bankakreppuna að segja þá langar mig bara að segja ykkur frá því að við Hjalli erum orðin fræg.
Þýskur upplýsingavefur um górillur ákvað að nota mynd sem við tókum í Rúanda í vor í hausinn á vefnum. Undir Creative Commons leyfinu er það náttúrulega ekkert nema sjálfsagt.
Upprunalega myndin:

:)
MD
Nýtt útlit – sama bloggið
Jæja, einka sysadmininn minn var að snillast og flytja til hýsinguna og uppsetninguna á blogginu mínu. Þetta er gert í framhaldi af mjög pirrandi comment-spam árás sem ég varð fyrir í síðustu viku og sannast sagna nenni ekki að díla við. Drulludelarnir þeir eru nú vandamál wordpress þar sem bloggið mitt hefur nú fengið samastað. Þið komið auðvitað til með að finna það áfram á www.maggadora.com.
Er ekki alveg jafn frjáls með útlitið hérna og á hinum staðnum (þið kannist kannski við templatið) en þetta er miklu þægilegra í rekstri svona.
Og finnst ykkur ekki lundinn krúttlegur? Vissuð þið að hann knúsar eggið sitt innst í holunni sinni?
:)
MD
NES landspriset til Símans
Í þessari viku var haldin norræna vinnuvistfræðingaráðstefnan (Nordic Ergonomics Society 2008) og af því tilefni auglýsti íslenska vinnuvistfræðingafélagið, Vinnís, eftir verkefnum til að keppa um NES Landspriset. NES landspriset eru gefin á hverri ráðstefnu til fyrirtækja, stofnana eða verkefnahópa sem eru að vinna framúrskarandi vinnuvistfræðiverkefni.
Vegna þess að við erum að vinna alveg frábært verkefni hjá Símanum sem snýst um að bæta vinnuumhverfi framlínunnar tilnefndi ég verkefnið okkar og viti menn, við hreinlega unnum.
Í dómnefndaráliti kom fram að 5 verkefni hefðu verið tilnefnd og þar af hefðu tvö skarað fram úr:
“Bæði verkefnin fjalla um nýhönnun og breytingar frá eldra vinnuumhverfi til að hagræða og bæta aðstöðu fyrir starfsmenn. … Það sem er mikilvægt í báðum verkefnunum er að samstarf við starfsmenn og notendur vinnuumhverfisins er á öllum stigum og tillit er tekið til ergonomiskra (vinnuvistfræðilegra) þátta sem uppfyllir þar með forsendur fyrir tilnefningu. Undirbúningur verkefnanna með þarfagreiningu, skipulag, hönnun og þróunarferli hefur verið í mikilli samvinnu við starfsmenn fyrirtækjanna og verkefnahópa þar sem starfsmenn taka þátt.
Þar sem valnefndin þurfti að velja einn vinningshafa þá litum við til samsetningar hópsins sem verkefnin snúa að. Annað verkefnið felur í sér, að mati dómenfndar, töluvert nýnæmi hér á landi þar sem það fjallaði um að bæta vinnuumhverfi og notendaviðmót við tölvuvinnu í þjónustuveri hjá ungum framlínustarfsmönnum, í starfshópi þar sem stafsmannavelta er allnokkur. Því valdi nefndin að veita verkefninu Redesign of a technical environment for a telecommunication company call cdenter sem unnið er hjá einu af símafyrirtækjum Íslands Símanum.”
Það þarf ekki að taka það fram að við erum mjög montin og þetta er gríðarlega hvetjandi fyrir okkur.
Á ráðstefnunni flutti ég erindi um verkefnið fram til þessa og nú hefst undirbúningur fyrir næstu tvær greinar um þetta verkefni samhliða vinnunni í verkefninu.
:)
MD – Verðlaunaður nytsemissérfræðingur
**Uppfært**
Viðtal við mig í samfélaginu í nærmynd.
Krít
Hérna eru komnar nokkrar myndir frá ferð okkar til Krítar með Lottu, Eddu og Gulla.
:)
MD
Atlönsk þjónustulund
Á þessum stutta tíma sem við vorum í Atlanta fengum við að kynnast því sem við köllum atlanska þjónustulund. Á bara 2 sólarhringum fengum við að bíða 2x í meira en klukkutíma eftir drykkjum. Þjónustufólk gargaði á okkur ítrekað eða ignoraði það sem við sögðum.
Gott dæmi var á fína veitingastaðnum þar sem við fórum út að borða til fyrir tónleikana. Eftir að hafa fyrst beðið eftir drykkjum í góðan klukkutíma og eftir mat í meira en hálftíma kom maturinn kaldur. Þegar ég kallaði á þjóninn og sagði “The food is cold” þá átti hann þetta gullna svar: “OK”. Við vorum svo rukkuð fyrir bæði mat og drykki!
Hótelrútan sem við þurftum að grípa á sunnudagskvöldið stoppaði úti á miðri götu þegar við veifuðum henni og tilkynnti okkur að þetta væri ekki stoppustöð og rauk svo áfram (ég veit ekki af hverju hún kippti okkur ekki bara með fyrst hún var stopp á annað borð). Og þegar við loksins fundum hana var hún full.
Hótelið sem við gistum á átti handa okkur farangurslausa fólkinu tannbursta en ekkert tannkrem og hafði ekki einu sinni vit á að benda okkur á að það fengist í hótelbúðinni sem opnaði klukkan 9.
Það var eiginlega ekkert hægt að gera nema hlæja að þessu. Ferðin leystist upp í einn langan farsa og óhætt að segja að við höfum ekki hlegið svona mikið lengi. Sem er hollt. Og verður lengi í minnum haft. En við þurfum ekkert að fara þangað niðureftir aftur.
:)
MD