Eftir frábæran tæknitátufund á föstudaginn (takk fyrir skemmtunina, allar saman :D ) rakst ég á miður skemmtilega grein í dag sem fjallar um nýlegar rannsóknir sem sýna að það er síst minni þörf á félagsskap eins og tæknitátum og UT konum í dag. Og þá rakst ég á þetta stórskemmtilega framtak um að vekja athygli á því mikilvæga hlutverki sem tæknitátur allsstaðar þjóna: Dagur Ödu Lovelace.
Taktu þátt! Veldu þér þína uppáhaldstæknitátu og bloggaðu um hana þann 24. mars næstkomandi og hjálpaðu til að vekja athygli á því fjölbreytta og frábæra starfi sem tæknitátur sinna um allan heim.
:)
MD
