Pizzuvísitalan

Þegar ég var í Verzló í gamla daga vann ég mér inn vasapening með því að vinna hjá Jóni Bakan. Jón Bakan var með fyrstu pizzustöðunum á Íslandi sem buðu upp á heimsendingu. Eftir að vinna þarna tók það mig marga mánuði að losna við hvítlaukslyktina af fingrunum og mörg ár að langa i pizzu aftur.

En það situr enn í mér að hjá Jóni Bakan mátti fá 16″ með tveimur áleggstegundum á þúsundkall.

Og þessa vikuna eru ekki bara einn, heldur tveir pizzastaðir að bjóða pizzu með tveimur áleggstegundum á þúsundkall.

Verðbólga hvað?

Fyrir þá sem ekki eru sleipir í hugarreikningi (eða nógu kurteisir til að þykjast ;) ) þá eru komin 18 ár síðan ég vann hjá Jóni Bakan. Á þeim tíma hefur neysluvísitalan farið úr 155 í 307. En 1000 kall dugir enn til að kaupa 16″ með tveimur áleggstegundum.

:)
MD

No comments yet »

Your comment

HTML-Tags:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>